Sýningarspjall um Myndir ársins 2020
Sýningin Myndir ársins 2020 stendur yfir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur til loka febrúar.
Í tilefni af sýningunni munu nokkrir verðlaunahafar ársins 2020 segja frá myndum sínum í safninum sunnudaginn 28. febrúar n.k. kl. 14.
Þeir ljósmyndarar sem munu leiða spjallið eru Þorkell Þorkelsson sem á mynd ársins og myndaröð ársins; Kjartan Þorbjörnsson (Golli) sem á bestu portrettmynd ársins; og Kristinn Magnússon sem hlaut verðlaun fyrir fréttamynd ársins og bestu tímaritamynd ársins.
Blaðaljósmyndarafélag Íslands stendur árlega fyrir sýningu á myndum ársins sem valdar eru af óháðri dómnefnd úr öllum innsendum myndum íslenskra blaðaljósmyndara.
Sunnudagurinn 28. febrúar er jafnframt síðasti sýningardagur. Bók með öllum myndum sýningarinnar fæst í safnbúð Ljósmyndasafns Reykjavíkur.
Viðburðurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir og fjöldi gesta takmarkast við 50. Reglum um fjöldatakmarkanir er framfylgt með talningu gesta.
Aðgangur á viðburðinn er ókeypis.