febrúar 3, 2021

Vetrarhátíð 4. - 7. febrúar

Vetrarhátíð 2021 fer fram með breyttu sniði dagana 4.-7. febrúar næstkomandi. Áhersla verður lögð á ljóslistaverk utandyra og á útilistaverk í borgarlandinu.

Vetrarhátíðin fer fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samstendur af þrem meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og Ljósalist ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemmingu í borginni.

Ljósaslóð Vetrarhátíðar verður í lykilhlutverki en það er slóð ljóslistaverka sem liggur um miðborgina. Ekki verður um neina formlega opnun að ræða á hátíðinni né heldur fjölmenna viðburði. Fólk er hvatt til þess að skoða verkin á sínum eigin hraða og virða sóttvarnarreglur sem í gildi eru. Safnanótt verður frestað til vorsins en hætt hefur verið við sundlauganótt.

Ljósaslóð Vetrarhátíðar

Ljósaslóð Vetrarhátíðar lýsir upp skammdegið á skapandi hátt og myndar skemmtilega gönguleið frá Hallgrímskirkju niður á Austurvöll og að Ráðhúsi Reykjavíkur.

Rúmlega 20 ljóslistaverk lýsa leiðina og verður þeim varpað á byggingar og glugga öll kvöld hátíðarinnar frá kl. 18-21. Óvænt ljóslistaverk má finna á leiðinni á veggjum, í gluggum og í húsasundum og er ljósaslóðin unnin í samvinnu við hina Seyðfirsku hátíð List í ljósi sem vakið hefur athygli jafnt hérlendis sem og erlendis síðustu ár.

Reykjavíkurborg og Orka Náttúrunnar í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stóðu nýlega fyrir samkeppni um ljósverk og leika tvö þau hlutskörpustu lykilhlutverki í Ljósaslóð Vetrarhátíðar 2021.

Þetta eru verkin Samlegð/Synergy  eftir Katerina Blahutova og Þorstein Eyfjörð Þórarinsson sem vann fyrsta sæti. Verkið er í garðinum við listasafn Einars Jónssonar.

Hitt verkið ber heitið Truflun/Interference eftir Litten Nystrøm og Harald Karlsson sem verður varpað á Hallgrímskirkju.

Útilistaverk á Höfuðborgarsvæðinu

Í stað Safnanætur þá verður lögð áhersla á útilistaverkin á Höfuðborgarsvæðinu og verður boðið upp á leiðsagnir. Lýst verða upp nokkur svæði þar sem gefur að líta mörg útilistaverk  og vakin er athygli á sérstöku appi listasafns Reykjavíkur þar sem er hægt að kynna sér öll útilistaverk Reykjavíkurborgar.

Dagskrá Vetrarhátiðar 2021 má nálgast á vetrarhatid.is

#borginokkar